Rekaviður í listamiðstöðinni Nesi á Skagaströnd

Forsíða heimasíðu verkefnisins.
Forsíða heimasíðu verkefnisins.

Laugardaginn 30.október var sýningin „Rekaviður – lifandi gagnabanki“opnuð í listamiðstöðinni Nesi að Fjörubraut 8 á Skagaströnd og við sama tækifæri var heimildamynd um rekavið frumsýnd. Sýningin verður opin frá kl. 13-17 mánudag til miðvikudags nú í fyrstu viku nóvember.

Á heimasíðu SSNV segir að Rekaviður – lifandi gagnabanki sé kennslufræðilegt rannsóknarverkefni sem hefur það að markmiði að vekja athygli á loftslagsbreytingum á Norðurslóðum með tilvísun til farleiða rekaviðar, mikilvægi skógræktar sem mótvægi loftslagsbreytinga en einnig sem þýðingarmikill hluti af sögu Íslands og menningu. Verkefnið „Rekaviður“er líka hvatning til allra um að taka þátt í sköpun verka úr rekaviði og til að leggja sitt af mörkum í skógrækt sem mótvægi við loftslagsbreytingar.

Verkefnið samanstendur af ferðasýningu sem er kynning á mismunandi nýtingu rekaviðar, 45 mínútna langri heimildarmynd um rekavið og vefsíðu verkefnisins www.rekavidur.com þar sem er ítarlegri fróðleikur. Heimasíðan er stútfull af efni og sannarlega áhugaverð og fræðandi. Síðan var hönnuð af einni af stúlkunum sem tóku þátt í verkefninu, Ines Meier.

Rekaviður – ákall í verki“ var upphaflega hugmynd sem spratt upp í „Kollektiv Lichtung“ í Berlín en er unnin í samstarfi við Nes listamiðstöð á Skagaströnd og í samvinnu við Háskólasetur Vestfjarða. Verkefnið er styrkt af Loftslagssjóði.

Heimildir: Vicki O'Shea og SSNV

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir