Reglugerð um endurgreiðslu vegna þjónustu sérgreinalækna framlengd

Mynd af vef Stjórnarráðsins.
Mynd af vef Stjórnarráðsins.

Gildistími reglugerðar heilbrigðisráðherra um endurgreiðslu vegna þjónustu sérgreinalækna hefur verið framlengdur frá 1. september til 31. október nk. Á  vef Stjórnarráðsins kemur fram að reglugerðin hafi verið send Stjórnartíðindum og birtist í dag.

Fyrir mistök var reglugerð um framlengdan gildistíma reglugerðar um endurgreiðslu vegna þjónustu sérgreinalækna ekki send Stjórnartíðindum nógu tímanlega til að hún birtist 1. september en rétturinn er engu að síður tryggður frá og með deginum í dag og helst því óbreyttur fyrir þá sem njóta þjónustunnar en samningaviðræður milli Sjúkratrygginga Íslands og sérgreinalækna standa yfir. Heilbrigðisráðuneytið leggur áherslu á að staða sjúklinga gagnvart endurgreiðslu kostnaðar meðan samningar liggja ekki fyrir sé tryggð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir