Ræktum Ísland - Hringferð um landið hefst í kvöld
Fyrsti fundur í hringferð um Ræktum Ísland!, umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, fer fram í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri kl. 20 í kvöld. Á morgun fer fram fundur á Ísafirði en alls er boðað til tíu opinna funda um allt land á næstu 16 dögum. Einn fundur verður haldinn á Norðurlandi vestra og mun fara fram á Blönduósi þann 8. júní.
Ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynna þau Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, og Hlédís H. Sveinsdóttir, ráðgjafi og verkefnastjóri, umræðuskjalið þar sem er að finna meginatriði eða tillögur í 19 efnisköflum sem lagt er til að verði lögð til grundvallar við endanlega gerð landbúnaðarstefnunnar og aðgerðaráætlunar í samræmi við hana.
„Ræktum Ísland! var birt á samráðsgátt stjórnvalda. Þær umsagnir sem þar komu fram gefa fyrirheit um að skjalið geti orðið grundvöllur að víðtækri sátt um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Í kvöld hefst síðan næsti fasi þessa mikilvæga verkefnis – við munum á næstu 16 dögum halda alls tíu fundi um allt land. Þetta er lykilatriði við mótun landbúnaðarstefnu; náið samráð við fólkið í landinu. Ég hvet alla til að mæta til þessara funda, hlusta eftir þeim hugmyndum sem liggja fyrir og láta í sér heyra varðandi framhaldið enda er tilgangurinn með þessum fundum fyrst og að hlusta eftir viðhorfi fólks, hugmyndum og ábendingum,“ segir Kristján Þór.
Dagskrá fundanna er eftirfarandi:
- Vesturland 1. júní kl.20:00. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri.
- Ísafjörður 2. júní kl. 20:00 Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði
- Blönduós 8. júní kl. 16:00. Eyvindarstofa
- Eyjafjörður 8. júní kl. 20:30. Hlíðarbær.
- Þistilfjörður 9. júní kl. 12:00. Svalbarðsskóli.
- Egilsstaðir 9. júní kl. 20:00. Valaskjálf.
- Höfn í Hornafirði 10. júní kl. 12:00. Nýheimar.
- Selfoss 14. Júní kl. 20:00. Þingborg.
- Höfuðborgarsvæðið 15.júní kl. 20:00. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.
- Opinn fjarfundur 16. júní kl. 12.
Sjá nánar HÉR
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.