Opið bréf til sveitarstjóra og sveitarstjórnar Skagafjarðar

Félag grunnskólakennara  í Árskóla á Sauðárkróki sendir frá sér opið bréf til sveitastjóra og sveitastjórnar Skagafjarðar til að koma m.a á framfæri vonbrigðum að formaður fræðslunefndar Skagafjarðar sé meðal þeirra sem stefna Kennarasambandi Íslands fyrir ólögmætt verkefall. Bréfið í heild sinni má lesa hér að neðan.

Við kennarar í Árskóla viljum koma á framfæri vonbrigðum okkar varðandi það að formaður fræðslunefndar Skagafjarðar skuli vera meðal þeirra sem stefnir Kennarasambandi Íslands fyrir ólögmætt verkfall. Við, ásamt félagsfólki Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla í Skagafirði, metum það svo að formaður fræðslunefndar hafi brotið siðareglur kjörinna fulltrúa Skagafjarðar og þar með brotið það traust sem ríkt hefur undanfarin ár í skólasamfélaginu. Í Árskóla hefur ávallt verið góður starfsandi og mikið traust einkennt vinnustaðinn. Með þeirri framgöngu sem formaður fræðslunefndar sýnir eru það mikil vonbrigði að störfum okkar sé ekki sýnd sú virðing sem þau eiga skilið.

Við teljum að með þessu sé formaður fræðslunefndar að sinna sérhagsmunum fram yfir almannahagsmuni. Við óttumst að þessi framkoma og það traust sem hefur glatast hafi alvarlegar afleiðingar, sérstaklega í ljósi þess hve erfitt er að fá faglært starfsfólk í skólana. Aðgerðir sem þessar grafa undan trausti kennara og annarra starfsmanna innan skólanna. Getur það leitt til þess að hæft starfsfólk hverfi frá störfum, en slík þróun væri skaðleg fyrir skólasamfélagið í Skagafirði.

Nú þegar hefur eitt uppsagnarbréf frá Ársölum borist skólayfirvöldum í Skagafirði en leikskólinn státar að því að vera sá skóli sem hefur hvað flesta faglærða kennara innan sinna raða á landinu. Við skorum á Skagafjörð að sýna starfsmönnum sínum þá virðingu og traust sem þarf að ríkja til að halda áfram faglegum störfum í skólunum okkar.

Félag grunnskólakennara í Árskóla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir