Okkar framtíð á Norðurlandi vestra

Flottir fulltrúar unga fólksins á Norðurlandi vestra ásamt Láru, Erlingi og Þorsteini. MYND AF SSNV.IS
Flottir fulltrúar unga fólksins á Norðurlandi vestra ásamt Láru, Erlingi og Þorsteini. MYND AF SSNV.IS

Ungmennaþing SSNV fór fram í félagsheimilinu á Blönduósi í gær og heppnaðist vel. Í frétt á vef SSNV segir að markmið dagsins hafi verið að gefa ungu fólki á Norðurlandi vestra tækifæri til þess að hafa áhrif á stefnumál landshlutans og koma sínum hugmyndum á framfæri. Á þingið mættu 43 ungmenni á aldrinum 13-18 ára frá öllum sveitarfélögum landshlutans.

Yfirskrift þingsins í ár var Okkar framtíð á Norðurlandi vestra en afurð vinnustofunnar verður síðan notuð við gerð nýrrar sóknaráætlunar fyrir svæðið. „Ungmennin voru vinnu- og áhugasöm og erum við mjög stolt af þessum flottu fulltrúum. Það sem við viljum einnig taka út úr þessum degi er tengslamyndun á milli unga fólksins í landshlutanum og SSNV og teljum við það hafa heppnast vel,“ segir í fréttinni.

Það voru Lára Kristín Skúladóttir og Erlingur Fannar Jónsson sem héldu utan um vinnustofuna. Ragnheiður Aradóttir og Þorsteinn Bachmann sáu um fyrirlestra dagsins og vöktu þau mikla gleði. Nú tekur við samantekt hjá starfshópi ungmennaþingsins og verða niðurstöður kynntar á haustþingi SSNV þann 15. október nk.

„SSNV vill þakka öllum þeim sem tóku þátt í deginum með okkur og þá sérstaklega frábæra unga fólkinu okkar sem stóðu sig mjög vel. Framtíðin er svo sannarlega björt á Norðurlandi vestra og hlökkum við til að efla áframhaldandi samstarf,“ segir að lokum í fréttinni á vef SSNV en einnig er sagt frá þinginu á Facebook-síðu SSNV þar sem er að finna fleiri myndir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir