Nýr framkvæmdastjóri á LANDMARK

Andri Sigurðsson. AÐSEND MYND
Andri Sigurðsson. AÐSEND MYND

Andri Sigurðsson, fasteignasali og einn eig­enda LANDMARK fasteignamiðlunar ehf., hef­ur verið ráðinn fram­kvæmda­stjóri fé­lags­ins. Tek­ur hann við af Þóreyju Ólafsdóttur, fasteignasala sem hef­ur gegnt starf­inu undanfarin ár. Þórey gengur einnig úr eigendahópnum og hyggst nú ein­beita sér al­farið að sölu fasteigna hjá LANDMARK.

Aðrir eigendur LANDMARK eru [Króksarinn] Júlíus Jóhannsson, Monika Hjálmtýsdóttir (starfandi formaður Félags fasteignasala), Sveinn Eyland og Sigurður Rúnar Samúelsson, öll fasteignasalar.

Spennt­ur fyr­ir framhaldinu

„Ég er ákaf­lega spennt­ur fyr­ir því að takast á við nýtt hlutverk samfara því að selja fasteignir og er þakklátur traustinu sem mér er sýnt. Á LANDMARK starfar samheldinn hópur löggiltra fasteignasala ásamt öflugri skjalagerðardeild, samtals þrettán manns. Það er mikill hugur í okkur og ég hlakka til að leiða áfram­hald­andi upp­bygg­ingu stof­unn­ar með þeim öfl­uga hópi sem þar starfar,“ seg­ir Andri í til­kynn­ing­unni.

Skrifstofa LANDMARK er að Hlíðasmára 2 í Kópavogi.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir