Norðurstrandarleið hlýtur nýsköpunarviðurkenningu ferðaþjónustunnar

Frá afhendingu Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar 2021. Eliza Reid, forsetafrú og Bjarnheiður Hallsdóttur, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar ásamt fulltrúum Markaðsstofu Norðurlands þeim Halldóri Óla Kjartanssyni, verkefnastjóra, Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra og Katrínu Harðardóttur, verkefnastjóra Norðurstrandaleiðar. Mynd: Saf.is.
Frá afhendingu Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar 2021. Eliza Reid, forsetafrú og Bjarnheiður Hallsdóttur, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar ásamt fulltrúum Markaðsstofu Norðurlands þeim Halldóri Óla Kjartanssyni, verkefnastjóra, Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra og Katrínu Harðardóttur, verkefnastjóra Norðurstrandaleiðar. Mynd: Saf.is.

Markaðsstofa Norðurlands var tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar í ár, en verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í fyrradag. Tilnefninguna hlaut MN vegna Norðurstrandarleiðar – Arctic Coast Way, sem opnaði við hátíðlega athöfn árið 2019 og hefur orðið að stórum segli í ferðaþjónustu á Norðurlandi.

Sýningin Icelandic Lava Show hlaut verðlaunin, en auk þess var VÖK Baths á Egilsstöðum tilnefnt og segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands að Samtök ferðaþjónustunnar veiti verðlaunin árlega, fyrir athyglisverðar nýjungar. Markmiðið sé að hvetja fyrirtæki innan samtakanna til nýsköpunar og frumkvöðla til dáða í ferðaþjónustu. Alls bárust fjórtán tilnefningar til samtakanna en sem fyrr segir voru þessi þrjú fyrirtæki efst á lista dómnefndar, og fengu MN og Vök sérstakar viðurkenningar fyrir nýsköpun í ferðaþjónustu.

Í tilkynningu frá SAF segir: „Tilnefningarnar til Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar endurspegla mikla grósku og nýsköpun í ferðaþjónustu um allt land. Hugmyndaauðgi, stórhugur og fagmennska einkennir mörg þau fyrirtæki sem tilnefnd voru og var dómnefnd því ákveðinn vandi á höndum. Nefndarmenn voru þó einróma um að handhafi verðlaunanna í ár sé Icelandic Lava Show.“

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, Katrín Harðardóttir, verkefnastjóri Norðurstrandarleiðar og Halldór Óli Kjartansson, verkefnastjóri hjá MN, tóku við viðurkenningu vegna tilnefningarinnar á Bessastöðum.

„Það gleður okkur mikið að fá slíka tilnefningu og sýnir þann kraft sem einkennir norðlenska ferðaþjónustu. Verkefnið er sprottið úr nýsköpun ferðaþjónustunnar á Norðurlandi og sýnir vel þann sameiginlega slagkraft sem í henni býr. Því var það okkur mikill heiður að taka við viðurkenningunni fyrir hönd okkar samstarfsfyrirtækja,“ segir Arnheiður.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir