Níu júdókappar í Tindastól á Íslandsmóti yngri flokka

Keppendur Tindastóls á Íslandsmóti yngri flokka 2017. Aftari röð frá vinstri: Arnór Freyr Fjólmundsson, Viktor Darri Magnússon, Þorgrímur Svavar Runólfsson, Tsvetan Tsvetanov Michevski, Andri Björn Andrason og Magnús Elí Jónsson. 
Fremri röð frá vinstri: Sveinn Kristinn Jóhannsson, Haukur Rafn Sigurðsson og Ása María Sigurðardóttir.
Mynd Einar Örn Hreinsson.
Keppendur Tindastóls á Íslandsmóti yngri flokka 2017. Aftari röð frá vinstri: Arnór Freyr Fjólmundsson, Viktor Darri Magnússon, Þorgrímur Svavar Runólfsson, Tsvetan Tsvetanov Michevski, Andri Björn Andrason og Magnús Elí Jónsson. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Kristinn Jóhannsson, Haukur Rafn Sigurðsson og Ása María Sigurðardóttir. Mynd Einar Örn Hreinsson.

Tindastóll átti níu keppendur á Íslandsmóti yngri flokka sem fram fór í Laugabóli, æfingaaðstöðu Ármanns, í Reykjavík sl. laugardag. Mótið er fyrir ellefu til tuttugu ára og er keppt í þyngdar- og aldursflokkum. Alls tóku 112 keppendur þátt í mótinu frá ellefu júdófélögum.

Á heimasíðu Tindastóls segir að hópurinn hafi farið suður til Reykjavíkur á föstudagskvöldið þar sem keppendur og fylgdarlið dreifðust víðs vegar um borgina og gistu hjá vinum og ættingjum.

„Eftir að vigtun lauk á laugardagsmorgninum klukkan 9 höfðu keppendur klukkutíma til að undirbúa sig fyrir átökin - en mótið sjálft hófst upp úr klukkan 10. Árangur hópsins á mótinu var góður og unnust alls eitt silfur og þrjú brons. Þorgrímur Svavar Runólfsson varð í öðru sæti í Dr. U15+90, Tsvetan Tsvetanov Michevski varð þriðji í Dr. U18-90, Viktor Darri Magnússon varð þriðji í Dr. U15-60 og Ása María Sigurðardóttir varð þriðja í St. U15-52. Aðrir keppendur stóðu sig líka vel og í heildina unnust margir góðir sigrar og eiga allir keppendur skilið gott hrós fyrir að hafa sýnt metnað, hugrekki og háttvísi.

Eftir að mótinu lauk skemmti hópurinn sér í leiktækjunum í Smáralindinni í smá tíma áður en lagt var af stað heim á leið,“ segir á Tindastóll.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir