Lee Ann Maginnis ráðin framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Tindastóls
Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls hefur ráðið Lee Ann Maginnis sem framkvæmdastjóra deildarinnar. Lee Ann mun starfa með stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls, barna- og unglingaráði félagsins og þjálfurum. Hún hefur störf á næstu dögum.
Í tilkynningu stjórnarinnar segir að Lee Ann sé reynslumikil á sviði rekstrar knattspyrnudeilda. Hún er lögfræðimenntaður kennari og starfar sem umsjónarmaður dreifnáms FNV í Austur-Húnavatnssýslu á Blönduósi. Lee Ann mun flytja á Sauðárkrók í vor ásamt syni sínum.
Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls óskar Lee Ann velfarnaðar í starfi og hlakkar til samstarfsins. Feykir óskar Lee Ann einnig velfarnaðar í starfinu en hún er lesendum Feykis ekki ókunn þar sem hún starfaði sem afleysingarblaðamaður sumarið 2018.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.