Lærdómssamfélag í Austur-Húnavatnssýslu

Mynd af felahun.is
Mynd af felahun.is

Starfsmenn leik- og grunnskóla í Austur-Húnavatnssýslu taka nú þátt í þróunarverkefninu Lærdómssamfélagið í A-Hún. sem Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands leiðir. Verkefnið er styrkt af Sprotasjóði og er markmiðið að efla faglegt samstarf, starfsþróun og gagnvirkt nám og skapa menningu sem hvetur og viðheldur stöðugu námi meðal starfsfólks leik- og grunnskóla til að efla nám nemenda.

Á heimasíðu Félags- og skólaþjónustu A-Hún. er greint frá því að haldið hafi verið hálfsdags námskeið í ágúst á TEAMS en síðari hluti námskeiðsins í Blönduskóla þann 6. október síðastliðinn. Þar segir einnig að kennarar og starfsmenn skóla munu starfa í lærdómssamfélagsteymum þvert á alla skóla í vetur þar sem unnið verður út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna. Áætlað er að halda uppskeruhátíð með öllu starfsfólki skólanna vorið 2022.

 Fleiri myndir er hægt að nálgast á felahun.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir