KS fær ekki að kaupa Gunnars
Samkeppniseftirlitið birti í gær ákvörðun sína um að ógilda kaup Kaupfélags Skagfirðinga á Gunnars ehf. sem stofnað var til í júní á síðasta ári en með kaupunum hefðu runnið saman tveir af stærstu framleiðendum á majónesi og köldum sósum á Íslandi. Vonbrigði, segir forstöðumaður Mjólkursamlagsins.
Á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins segir að Gunnars sé sterkt vörumerki í þessum vöruflokki og KS framleiðir og dreifir sömu vörutegundum undir merkjum E. Finnsson og eftir atvikum Vogabæjar, auk þess sem báðir aðilar framleiða þessar vörur einnig fyrir önnur fyrirtæki.
Að mati Samkeppniseftirlitsins hefði samruninn haft alvarlegar afleiðingar fyrir samkeppni, viðskiptavinum og neytendum til tjóns og snúa skaðleg áhrif samrunans aðallega að eftirfarandi atriðum:
Markaðsráðandi staða hefði orðið til á nánar tilgreindum mörkuðum fyrir hreint majónes og aðrar tilbúnar kaldar sósur sem skilgreindir eru nánar í ákvörðuninni. Eru fyrirtækin með mjög sterka stöðu á vörumörkuðum málsins. Þannig hefði sameinað fyrirtæki orðið stærsta fyrirtækið á viðkomandi mörkuðum og með umtalsverða yfirburði yfir helsta keppinaut sinn Kjarnavörur. Þá eru fáir framleiðendur að majónesi hérlendis og hefði þeim fækkað um einn vegna samrunans.
Fyrirtækin eru nánir og mikilvægir keppinautar við framleiðslu og sölu á hreinu majónesi og tilbúnum köldum sósum. Með kaupum KS á Gunnars hefði því náinn og mikilvægur keppinautur horfið af sviðinu og þar með það samkeppnislega aðhald sem því fylgir. Aðgangshindranir eru auk þess til staðar sem hindra samkeppni og gera innkomu burðugs keppinautar eða stækkun keppinauta ólíklegri en ella. Þá vegur kaupendastyrkur fárra aðila á dagvörumarkaði ekki upp á móti skaðlegum áhrifum samrunans með fullnægjandi hætti.
Skaðleg útilokunaráhrif og lóðrétt samþætting hefði aukist. Fyrir samrunann er Kaupfélag Skagfirðinga lóðrétt samþætt fyrirtæki með fjölþætta og víðfeðma starfsemi. Með samrunanum hefðu umsvif samstæðu Kaupfélagsins og lóðrétt samþætting þess aukist sömuleiðis. Í krafti aukinnar samþættingar og stöðu hins sameinaða fyrirtækis á aðliggjandi vörumörkuðum málsins hefði samruninn haft skaðleg útilokunaráhrif fyrir samkeppni á fráliggjandi mörkuðum, líkt og nánar greinir í ákvörðuninni.
„Þessu er hafnað af því að við erum of stórir, það segir sig sjálft. Við erum að melta þetta en það er svo sem ekkert um það að segja nema að þetta eru vonbrigði,“ sagði Magnús Jónsson, forstöðumaður Mjólkursamlags KS, aðspurður um málið. „Það er óbreytt staða og við höldum okkar striki.“
Nánar er hægt að lesa um úrskurð SE HÉR.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.