Krakkar geta sótt körfuboltanámskeið um helgina

Körfuboltaskóli Norðurlands vestra verður með þrjú námskeið um helgina, tvö á Sauðárkróki, í samstarfi við unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls, og eitt á Blönduósi. Á morgun laugardag hefst fyrra námskeiðið á Króknum klukkan kl. 11:30 og stendur til kl. 13:30 og það seinna frá kl. 10:00 - 12:00 á sunnudag. Á Blönduósi verður námskeið á sunnudaginn milli klukkan 14:30 - 16:30.

Allir krakkar í öllum heiminum fædd á árunum 2007 – 2013 eru velkomin, segir í tilkynningu frá Helga Frey Margeirssyni, skólastjóra Körfuboltaskólans og aðalþjálfara, en auk æfinga, keppna og verðlauna munu góðir gestir mæta þar sem leikmennirnir Javon Bess og Maddie Sutton munu meðal annarra láta sjá sig.

Skráningu á námskeiðin á Sauðárkróki laugardaginn 19. febrúar má finna HÉR
og á Blönduósi á sunnudaginn HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir