Kjúklingarétturinn okkar
Matgæðingar vikunnar í níunda tölublaði árið 2018 voru mæðgurnar Helga Rósa Pálsdóttir og Arndís Lilja Geirsdóttir. Þær fluttu í Skagafjörðinn frá Neskaupstað eftir að Helga Rósa fór í Hólaskóla. „Það var ekki aftur snúið heim eftir það,“ sagði hún. „Ég vinn í Verslunin Eyri , Arndís Lilja er í Árskóla. Hún er í Knapamerki 1 og stundar fótbolta en annars lifum við mæðgur og hrærumst í hestum.“
Mæðgurnar gáfu okkur uppskrift að kjúklingarétti sem er í uppáhaldi hjá þeim og á eftir þykir þeim gott að fá sér kakósúpu með ís.
AÐALRÉTTUR
Einfaldar og góðar kjúklingabringur fyrir 4-5
4 vænar kjúklingabringur
sólþurrkaðir tómatar
rautt pestó
paprikusmurostur
matreiðslurjómi
Aðferð:
Takið kjúklingabringur og leggið flatar á bretti. Skerið inn í hliðina á bringunum, aðeins lengra en inn að miðju þannig að þær haldist saman. Opnið bringurnar og penslið rauðu pestói innan og utan á þær. Skerið sólþurrkaða tómata í smátt og raðið inn í. Lokið bringunum og raðið í eldfast mót. Hitið í ofni á 180° í ca. 40 mín.
Sósa:
Paprikusmurostur settur í pott ásamt smá matreiðslurjóma látið bráðna við vægan hita. Matreiðslurjóma bætt út í eftir þörfum til að þynna.
Meðlæti:
Sætar kartöflur skornar í bita og settar í eldfast mót með olíu, kryddað með timían og rósmarín.
Salat með káli, gúrkum, vínberjum, papriku, raðlauk og tómötum. Doritos snakk (blár poki) grófmulið út í og fetaostur settur út í rétt áður en salatið er borið fram.
EFTIRRÉTTUR
Kakósúpa
Útbúið Vilko kakósúpu eftir leiðbeiningum á pakka.
Snæðið með Emmes vanilluís út á
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.