Jóladiskur og tónleikar á aðventu.

Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi hefur sent frá sér sinn þriðja hljómdisk. Diskurinn, sem heitir - Ég man þau jólin - hefur að geyma tólf  jóla- og aðventulög íslensk og erlend og eru þau frá ýmsum tímum.
Stjórnandi kórsins er Guðmundur St. Sigurðsson og undirleikari er Elinborg Sigurgeirsdóttir. 
Kórinn skipa um 30 söngmenn úr öllum sveitum héraðsins.

Í tilefni útgáfunnar mun kórinn halda tónleika á þremur stöðum nú á aðventunni,  Fyrstu tónleikarnir verða í Búðardal miðvikudaginn 10. desember kl. 21, næstu á Hólmavík, laugardaginn 13. desember kl. 16 og á þeir síðustu í Félagsheimili Hvammstanga, miðvikudaginn 17. desember kl. 21.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir