Ísak Óli með brons og Theodór Karlsson Íslandsmeistari
Skagfirðingurinn Ísak Óli Traustason hafnaði í 3. sæti í sjöþraut á Meistaramóti Íslands í fjölþrautum frjálsíþrótta sem fram fór í Frjálsíþróttahöllinni í Hafnarfirði um síðustu helgi. Hlaut hann 4673 stig og bætti sinn fyrri árangur um 294 stig.
Sigurvegari í sjöþrautinni var annar Skagfirðingur, Tristan Freyr Jónsson, en hann keppir fyrir ÍR. Hann fetar í fótspor föður síns Jón Arnar Magnússonar sem gerði garðinn frægan með liði UMSS á árum áður. Ingi Rúnar Kristinsson Breiðabliki var svo í 2.sæti.
Á heimasíðu Tindastóls segir að árangur Ísaks Óla í einstökum greinum í keppninni hafi verið þannig: 60m hlaup 7,23sek, hástökk 1,79m (pm/ih), langstökk 6,69m (pm/ih), kúluvarp 10,61m, 60m grind. 8,50sek (pm), stangarstökk 3,20m (pm-j), 1000m hlaup 2:54,13mín (pm).
Öldungurinn Íslandsmeistari
Þá segir að skagfirski "öldungurinn" Theodór Karlsson hafi keppt á MÍ-öldunga sem fór fram á sama stað og tíma. Theodór, sem keppti í flokki 40-44 ára, varð Íslandsmeistari í öllum fjórum greinunum sem hann keppti í, hástökki (1,60 m), langstökki (5,47 m), stangarstökki (3,20m) og þrístökki (10.78m).
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.