Hvalfjarðarvegur lokaður á morgun

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu er vakin athygli á að Hvalfjarðarvegur verður lokaður við Miðsand frá kl. 09:00-12:30 mánudaginn 11. apríl næstkomandi vegna varnaræfingarinnar Norður-Víkings.

Varnaræfingin Norður-Víkingur 2022 á Íslandi og á hafinu í kringum landið hófst 2. apríl og lýkur 14. apríl. Megintilgangur æfingarinnar er að æfa varnir sjóleiða umhverfis Ísland og mikilvægra öryggisinnviða en einnig leit og björgun á sjó og landi. Um er að ræða reglubundna tvíhliða varnaræfingu Íslands og Bandaríkjanna með þátttöku fleiri vina- og bandalagsríkja.

Sjá nánar um Norður-Víking HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir