Húnaþing vestra og Samtökin '78 gera samstarfssamning

Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri og Daníel E. Arnarsson framkvæmdastjóri Samtakanna ´78 handsala samninginn. MYND: HUNATHING.IS
Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri og Daníel E. Arnarsson framkvæmdastjóri Samtakanna ´78 handsala samninginn. MYND: HUNATHING.IS

Húnaþing vestra og Samtökin '78 hafa gert með sér samstarfssamning um reglubundna fræðslu samtakanna um hinsegin málefni fyrir starfsfólk grunnskóla, leikskóla og félagsmiðstöðvar, nemenda grunnskóla og til stjórnenda sveitarfélagsins til næstu þriggja ára. Í frétt á vef Húnaþings vestra segir að samningurinn beri með sér afar umfangsmikla fræðslu til starfsfólks og barna og ungmenna í sveitarfélaginu.

Í samningnum felst líka aðgengi allra íbúa sveitarfélagsins að ráðgjöf Samtakanna '78 án endurgjalds. Með samningnum er samstarf sveitarfélagsins og samtakanna formfest sem skapar skýrari ramma og gerir eftirfylgni markvissari. Megin markmið hans er að tryggja að hinsegin fólk mæti skilningi, líði vel í sveitarfélaginu og fái nauðsynlegan stuðning.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir