Húnabyggð hvetur íbúa til þátttöku í heilsudögum

Íbúar Húnabyggðar eru hvattir til að hreyfa sig, ganga eða hjóla í vinnu, fara í göngu- og hjólatúra en einnig að taka þátt í viðburðum sem boðið verður upp á. Heilsudagarnir byrjuðu í gær og standa til mánudagsins 30. september.

Ástæðan fyrir heilsudögum í Húnabyggð er að Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin víðsvegar um álfuna í september ár hvert. Markmið hennar er að kynna íþróttir og hreyfingu fyrir almenningi í Evrópu og er hún ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi. Húnabyggð tekur að sjálfsögðu þátt með því að efna til heilsudaga.

Hér má sjá fjölbreytta dagskrá heilsudaga í Húnabyggð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir