Hrútey hlýtur styrk frá Ferðamálastofu
Í fundargerð byggðarráðs Blönduósbæjar 26. Maí sl. kom fram staðfesting á því að ferðamálastofa hafi veitt Hrútey styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða að upphæð 15 milljóna króna.
Áætlað er að styrkurinn fari í þær framkvæmdir sem eiga sér stað í Hrútey en fyrirhugað er að koma fyrir nýrri brú í eyjuna og er sú framkvæmd farin af stað. Brúin er reyndar ekki ný en á vef Blönduósbæjar kemur eftirfarandi fram:
„Nýja brúin í Hrútey er gamla Blöndubrúin sem var vígð 1897, árið 1962 var hún flutt fram í Svartárdal og brúaði þar Svartá við Steinárbæina og stóð þar í tæp 40 ár. Brúin var aftur flutt á Blönduós og hefur nú fengið yfirhalningu og mun þjóna nýjum tilgangi sem göngubrú yfir í Hrútey og mun brúin verða tengd gönguleiðum beggja vegna og að lokum verður núverandi göngubrú fjarlægð“.
Styrkveitingin mun nýtast við uppsteypun á undirstöðun fyrir brúnna, ásamt því að smíðað hefur verið nýtt gólf í hana og komið upp nýjum handriðum.
/SMH
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.