Halli á rekstri Skagabyggðar minni en áætlun gerði ráð fyrir
Í frétt á Húnahorninu segir af því að sveitarfélagið Skagabyggð var rekið með 6,8 milljón króna halla árið 2022.Afkoman er þó nokkuð betri en áætlun gerðir ráð fyrir, sem var halli upp á 9,7 milljónir. Skatttekjur voru 9 milljónum hærri en áætlun en stærstu útgjaldaliðir sveitarfélagsins, sem eru félagsþjónusta og fræðslu- og uppeldismál, voru á pari við áætlun. Stærsta neikvæða frávikið frá áætlun var á sameiginlegum kostnaði.
„Varanlegir rekstrarfjármunir lækkuðu um um 5,5 milljónir milli ára og námu um 64 milljónir árslok 2022 en engar eignfærslur voru á árinu. Handbært fé lækkaði um 9,4 milljónir milli ára og nam um 37 í árslok 2022, samanborið við 46 milljónir í árslok 2021. Engin lántaka var á síðasta ári hjá Skagabyggð. Eiginfjárhlutfall var 84,3% í árslok 2022 samanborið við 80,5% árið áður.
Seinni umræða um ársreikning Skagabyggðar fyrir árið 2022 fór fram á sveitarstjórnarfundi í gær og var hann samþykktur samhljóða.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.