Gerðu gott mót á Mannamótum 2022
Mannamót Markaðsstofanna fór fram í sl. fimmtudag í Kórnum í Kópavogi. Segir á heimasíðu SSNV að þessi árlegi viðburður, sem ekki náðist þó að halda á síðast ári, sé fyrir löngu orðinn fastur liður í samskiptum ferðaþjónustuaðila á landsbyggðinni og söluaðila á höfuðborgarsvæðinu.
Ennfremur kemur fram í frétt SSNV að aðrir aðilar, s.s leiðsögumenn og fjölmiðlafólk, nýti sér þennan viðburð til að afla sér upplýsinga um það nýjasta sem í boði er.
„Það var virkilega ánægjulegt að sjá 20 fyrirtæki af Norðurlandi vestra taka þátt, en það er svipaður fjöldi og hefur verið á fyrri Mannamótum. Okkar fólk lét vel af viðtökunum og horfir björtum augum fram á veg m.t.t. bókunarstöðu. Og auðvitað voru allir sammála um að það væri mikill léttir að geta aftur farið að hitta fólk í raunheimum,“ segir í færslu SSNV.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.