Fyrstu heimaleikirnir um helgina
Meistaraflokkar Tindastóls leika sína fyrstu heimaleiki um helgina þegar Keflavík og Njarðvík koma í heimsókn. Stelpurnar hefja leik klukkan 19:15 í kvöld gegn Keflavík og strákarnir eiga leik á laugardeginum klukkan 15:00 gegn Njarðvík. Stelpurnar töpuðu sínum fyrsta leik gegn sterku liði ÍA á meðan strákarnir hafa gert tvö jafntefli í sínum fyrstu tveimur leikjum.
Árskort gilda á alla leiki meistaraflokkanna og kostar 10 þúsund krónur. Alls spila meistaraflokkarnir þrír 27 heimaleiki á Sauðárkróksvelli í sumar, meistaraflokkur karla spilar 11 leiki, meistaraflokkur kvenna 9 og Drangey 7. Fyrsti heimaleikur Drangeyjar verður mánudaginn 5. júní klukkan 17:00.
Þau eru til sölu sem gildir á leiki félagsins. Árskort er hægt að panta með því að senda upplýsingar á fotbolti@tindastoll.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.