Flaggað vegna útfarar Bryndísar Klöru

Það er fallegur dagur en flaggað í hálfa stöng við FNV. MYND: GG
Það er fallegur dagur en flaggað í hálfa stöng við FNV. MYND: GG

Ýmsir hafa eflaust velt fyrir sér hvers vegna flaggað sé í hálfa stöng við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í dag og fékk Feykir ábendingu um að sumir væru áhyggjufullir. Ástæðan fyrir því að flaggað er er sú að í dag er Bryndís Klara Birgisdóttir, stúlkan sem lést eftir hnífstunguárás á Menningarnótt í Reykjavík, borin til grafar.

Hennar er víða minnst og nemendur í framhaldsskólum landsins sína samhug. Má því reikna með að flaggað sé í hálfa stöng við flesta, ef ekki alla, framhaldsskóla landsins í dag.

Útför Bryndísar Klöru Birgisdóttur verður gerð frá Hallgrímskirkju klukkan 15 í dag. Útförinni verður streymt á Vísi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir