Feykir 24+ meðal tíu bestu osta í heimi!
Á Sauðárkróki er búinn til einn besti ostur í heimi en á dögunum vakti Feykir 24+ mikla athygli í Heimsmeistarakeppni osta sem fram fór í Wisconsin í Bandaríkjunum. Segir í frétt Mjólkursamsölunnar að þetta sé í fyrsta sinn sem íslenskur ostur sé meðal keppenda um heimsmeistaratitilinn.
„Keppnin, sem um ræðir, er stærsta keppni sinnar tegundar í heiminum og er hún haldin ár hvert. Að þessu sinni voru sendir inn 2.978 ostar frá 29 löndum og 33 fylkjum innan Bandaríkjanna svo árangur Feykis 24+ er stórmerkilegur,“ segir á heimasíðu MS en í dómnefnd sitja ostameistarar, mjólkurfræðingar, fulltrúar stærstu verslanakeðjanna, fulltrúar neytenda og aðrir fagaðilar og telur hún um 60 manns.
Goðdalir – Skagfirskir gæðaostar.
Það er Jón Þór Jósepsson, framleiðslustjóri hjá Mjólkursamlagi KS, ásamt öðru starfsfólki samlagsins sem stendur að Goðdala ostunum sem slegið hafa í gegn frá því þeir komu á markað en í frétt MS segir að óhætt sé að segja að Feykir 24+ sé flaggskipið í hópi sælkeraostanna sem þaðan koma. Jafnframt segir að mikil natni sé lögð í framleiðslu á Feyki 24+ og tekur allt ferlið meira en 24 mánuði en það er tíminn sem hann þarf til að ná sínum einstöku eiginleikum í áferð og bragði.
„Það telst stórsigur í þessari keppni að lenda í 8. sæti á fyrsta þátttökuári og er því um að ræða stórkostlegan árangur fyrir íslenska ostagerð, en allir ostarnir eru verðugir fulltrúar heimsmeistaratitilsins. Þarna eru mjólkurfræðingar og ostameistarar sem hafa stúderað þessi keppni og eru með mikinn fjölda osta og mjólkurvara ár hvert,“ er haft eftir Jóni Þór í frétt MS.
Heimsmeistaratitillinn í ár fór til Mountain Dairy Fritzenhaus fyrir svissneskan Gruyére en í flokknum sem Feykir 24+ keppti í sigraði hollenskur Roemer Sweet frá Van der Heiden Kaas B.V.
Hér fyrir neðan má sjá stutta umfjöllun um ostinn sem birt er á Facebook síðu keppninnar.
Tengd frétt: Goðdalir – Nýir skagfirskir gæðaostar frá Mjólkursamlagi KS
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.