Ferðaþjónusta á landsbyggðinni, þróun og rannsóknir eftir Covid – Málstofa
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
22.06.2021
kl. 08.35
Á morgun, miðvikudaginn 23. júní, verður haldin málstofa að Hólum í Hjaltadal um ferðaþjónustu á landsbyggðinni í kjölfar Covid-19 og mikilvægi rannsókna í uppbyggingu greinarinnar. Málstofan er skipulögð af Ferðamálastofu og Ferðamáladeild Háskólans á Hólum og fer fram í stofu 202 (Hátíðarsal).
Dagskráin er eftirfarandi:
16.00 – 17.30
- Velkomin heim að Hólum – Erla Björk Örnólfsdóttir rektor Háskólans á Hólum
- Ferðamáladeild Háskólans á Hólum – ferðaþjónusta til framtíðar, Ingibjörg Sigurðardóttir deildarstjóri
- Horfur í ferðaþjónustu eftir Covid – Ferðamálastofa
- Ferðaþjónusta á Norðurlandi – Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands
- Ferðaþjónusta frá sjónarhóli rekstraraðila í Skagafirði – Evelyn Kuhne formaður Félags Ferðaþjónustunnar í Skagafirði
- Umræður
Málstofan er öllum opin og eru áhugasamir boðnir hjartanlega velkomnir heim að Hólum.
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.