Evrópurútan á ferð um landið

Á vef SSNV segir að í tilefni af því að 30 ár eru síðan að samningur um Evrópska efnahagssvæðisins (EES) tók gildi, og veitti Íslandi aðgang að auknum tækifærum til samstarfs í Evrópu, mun Evrópurútan fara hringinn um landið í september þar sem vakin verður athygli á árangri af Evrópuverkefnum í heimabyggð og tækifærum til framtíðar í alþjóðasamstarfi.

Evrópurútan mun mæta á Blönduós mánudaginn 16. september og Sauðárkrók þriðjudaginn 17. september. Íbúum er boðið til fundar og samtals um tækfæri í heimabyggð til alþjóðasamstarfs í gegnum fjölmargar samstarfsáætlanir Evrópusambandins.

Blönduós mánudaginn 16. september - Félagsheimilið á Blönduósi kl 16:00-18:00

Sauðárkrókur þriðjudaginn 17. september - Kaffi Krókur (neðri hæð) kl. 11:00-13:00

Evrópurútan er skipulögð af Rannís sem hefur umsjón með öllum helstu samstarfsáætlunum á sviði menntunar, menningar, vísinda og fyrirtækjasamstarfs og mun á hringferð sinni um landið veita upplýsingar um:

· Erasmus+

· Horizon Europe

· Creative Europe

· European Solidary Corps

· Enterprise Europe Network

· Digital Europe

· LIFE

· Nordplus

Við hvetjum öll til að mæta of kynna sér tækifæri til alþjóðasamstarfs til framtíðar fyrir sína heimabyggð.

Óskað er eftir skráningu á viðburðina fyrir áætlun veitinga á hverjum stað fyrir sig. Smellið hér fyrir skráningarform.

Hér má lesa nánar um viðburðaröðina.

Smellið hér til að sjá Facebook viðburð á Blönduósi.

Smellið hér til að sjá Facebook viðburð á Sauðárkróki

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir