Eva Pandora nýr starfsmaður á þróunarsviði Byggðastofnunar
Eva Pandora Baldursdóttir hefur verið ráðin í starf sérfræðings á þróunarsviði Byggðastofnunar. Starfið var auglýst í október síðast liðnum og bárust alls 29 umsóknir, 10 frá konum og 19 frá körlum. Á heimasíðu Byggðastofnunar segir að Eva, sem er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, sé að ljúka diplómanámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og er langt komin með MA nám í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Þá hefur hún einnig lokið starfsnámi hjá Höfuðborgarstofu í viðburðastjórnun.
Eva Pandora hefur þrátt fyrir ungan aldur fjölbreytta starfsreynslu. M.a. sat hún á Alþingi fyrir Pírata fyrir Norðvestur kjördæmi 2016-2017 og átti þar sæti í atvinnuveganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd. Þar áður starfaði hún m.a. hjá Iceland Travel þar sem hún bar ábyrgð á móttöku erlendra ferðamannahópa frá föstum viðskiptavinum. Hún hefur einnig starfað við reikningsskil og endurskoðun hjá KPMG og Sveitarfélaginu Skagafirði.
Megin verkefni Evu verða við verkefnið brothættar byggðir auk umsjónar með landsskrifstofu Norræna Atlantssamstarfsins (NORA) sem er á hendi Byggðastofnunar. Hún mun hefja störf 2. janúar nk.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.