Ertu með hugmynd?
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2021. Um er að ræða atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrkir, verkefnastyrkir á menningarsviði og stofn- og rekstrarstyrkir á menningarsviði. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 16. nóv. nk.
Á heimasíðu SSNV er að finna úthlutunarreglur, matsblað og ýmsar leiðbeiningar við gerð umsókna. Í tilkynningu frá samtökunum segir að góð umsókn auki möguleika umsækjenda á að fá styrk úr sjóðum svo mikilvægt sé að vanda vel til verka.
„Starfsmenn SSNV eru ætíð reiðubúnir til aðstoðar. Nú er bara að hefjast handa. Á árunum 2015-2020 bárust Uppbyggingarsjóði alls 688 umsóknir þar sem óskað var eftir 1100 millj. kr. og veitti sjóðurinn alls 475 styrki, samtals að upphæð 388 millj. kr. Hver einstakur styrkur var allt frá 150 þús. kr. og upp í rúmar sex milljónir.
Sé styrkjunum skipt í efnisflokka þá voru veittir 111 styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar, samtals að upphæð 181 millj. kr. Verkefnastyrkir á menningarsviði voru 302, samtals að upphæð 123 millj. kr. og stofn- og rekstrarstyrkir til safna og setra voru 62, samtals að upphæð 84 millj. kr.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.