Dagmar Helga Helgadóttir sigraði í Stóru upplestrarkeppninni
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Skagafirði var haldin í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í gær. Stóra upplestrarkeppnin hefur verið haldin í alls 22 skipti í Skagafirði. Stóra upplestrarkeppnin er miklu meir en keppni einn dagpart því er markvisst unnið með framsögn í skólastarfi allt frá degi íslenskrar tungu á ári hverju, en markmið Stóru upplestarkeppninnar er að allir nemendur fái þjálfun í því að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju.
Á lokahátíðinni öttu kappi tólf lesarar úr öllum grunnskólum Skagafjarðar og lásu sögubrot og tvö ljóð. Fóru leikar þannig að Dagmar Helga Helgadóttir úr Grunnskólanum austan Vatna hlaut fyrstu verðlaun, Snæfríður Áskelsdóttir úr Árskóla önnur og Greta Berglind Jakobsdóttir úr Grunnskólanum austan Vatna þau þriðju. Voru lesarar og varamenn þeirra sem einnig fluttu ljóð á hátíðinni til mikillar fyrirmyndar og sjálfum sér og skólum sínum til sóma.
Nemendur úr Tónlistarskóla Skagafjarðar austan Vatna sáu um tónlistarflutning og keppendur frá fyrra ári, þau Iðunn Kolka, Helgi Sigurjón og Lára stýrðu samkomunni styrkri hendi. Forlagið færði öllum keppendum bókina Bál tímans eftir Arndísi Þórarinsdóttur og Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur að gjöf.
/ Laufey Leifsdóttir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.