Covid sýnatökur um áramót

Opnunartími í Covid sýnatökur verður rýmkaður yfir áramótin á nokkrum starfsstöðvum HSN og þannig mögulegt að fara í hraðpróf á heilsugæslustöðinni á Sauðárkróki á gamlársdag og PCR próf sama dag auk 1. og 2. janúar.

Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu HSN verður boðið upp á hraðpróf á Sauðárkróki 31. desember kl. 8.30 - 9.00 og PCR próf dagana 31. desember, 1. janúar og 2. janúar kl. 9.30.

Á Blönduósi verður ekki boðið upp á þessa þjónustu utan hefðbundins opnunartíma en nánari upplýsinga er hægt að leita HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir