Bólusetningar á Sauðárkróki á miðvikudaginn

Bólusetningar halda áfram hjá HSN á Sauðárkróki. Bólusett verður á miðvikudaginn og að þessu sinni er bólusett á heilsugæslunni, gengið er inn um innganginn við hlið endurhæfingu. 

Fyrirkomulagið verður með þessum hætti:

Bólusett verður á HSN, inngangur við hlið endurhæfingu.

Miðvikudagurinn 25.ágúst

Kl.13.00 - 13.45 – geta börn 12 ára -15 ára mætt sem ekki hafa komist í bólusetningu

Kl.14.30 – 15.00 verður opinn tími fyrir þá sem ekki hafa komist í boðaða tíma

60 ára og eldri munu fá boð þegar 6 mánuðir hafa liðið frá bólusetningu nr.2.

 /SMH

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir