Bilun í kaldavatnstanki á Hólum

Í tilkynningu frá Skagafjarðarveitum eru íbúar á Hólum í Hjaltadal upplýstir um bilun sem varð í kaldavatnstanknum á staðnum og því megi búast við truflunum á rennsli kalda vatnsins þar.

Verið er að leita að biluninni og segir í tilkynningunni að vonir standi til að rennsli komist í lag sem fyrst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir