Aukinn stuðningur við nýsköpun á landsbyggðinni eftir að Nýsköpunarmiðstöð Íslands verði lögð niður

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Mynd: stjornarradid.is.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Mynd: stjornarradid.is.

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur kynnt frumvarp til laga um opinberan stuðning við nýsköpun í Samráðsgátt stjórnvalda. Í frumvarpinu eru lagðar til talsverðar breytingar á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi. Í frumvarpinu felast áform um að starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands verður lögð niður, stofnaðir verða Nýsköpunargarðar með áherslu á stuðning við frumkvöðla og sprotafyrirtæki á sviði hátækni, framlög til nýsköpunar á landsbyggðinni verða aukin og nýr sjóður settur á fót fyrir rannsóknir í byggingariðnaði.

„Með frumvarpinu erum við að forgangsraða verkefnum í þágu nýsköpunarumhverfisins í takti við Nýsköpunarstefnu. Umhverfi nýsköpunar á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum og frumvarpið tekur mið af því. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur gegnt mikilvægu hlutverki sem ber að þakka en undanfarna mánuði höfum við unnið að því að endurskoða hlutverk stofnunarinnar og fundið hluta verkefna hennar nýtt heimili á meðan önnur verkefni verða færð til eða hætt. Það er eðlileg þróun í jafn kviku umhverfi og nýsköpunarumhverfið á Íslandi á að vera,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Á heimasíðu stjórnarráðsins segir að þegar Nýsköpunarmiðstöð var stofnuð árið 2007 hafi verið gert ráð fyrir að stofnunin yrði endurskoðuð tveimur árum síðar. Slík endurskoðun hefur ekki átt sér stað fyrr en nú en bæði stjórnvöld og hagaðilar hafa lagt hana til, meðal annars þar sem kveðið var á í lögum um stofnunina að hún skyldi ekki vera í samkeppnisrekstri á markaði.

„Við viljum skerpa á hlutverki og forgangsröðun ríkisins í opinberum stuðningi við nýsköpun og atvinnulíf með því að leggja áherslu á þá starfsemi sem þarf mestan stuðning“ segir ráðherra.

Stofnaður verður sérstakur sjóður um byggingarannsóknir í samstarfi við félagsmálaráðuneytið og mótuð langtímastefna um þróun, rannsóknir og nýsköpun í íslenskum byggingariðnaði. Byggingariðnaðurinn er bæði mikilvæg og stór atvinnugrein og mikið er í húfi fyrir almenning í landinu að til staðar séu öflugar rannsóknir og fræðsla.

Auk rannsókna í byggingariðnaði hefur Nýsköpunarmiðstöð unnið að ýmsum rannsóknarverkefnum á sviði efnis-, líf- og orkutækni. Með tilkomu Nýsköpunargarða er þeirri starfsemi gert hærra undir höfði.

„Okkur finnst mikilvægt að tryggja formlega aðkomu háskólasamfélagsins að rekstri Nýsköpunargarða og að háskólarnir taki virkan þátt í að þróa verkefnið áfram,“ segir ráðherra á stjornarradid.is/ en meira um málið má finna HÉR.

Frumvarpið er nú í Samráðsgátt stjórnvalda en hægt er að skila inn umsögnum til og með 9. október 2020, sjá HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir