Atvinna: félagsráðgjafi í barnavernd

Félags- og skólaþjónusta A-Hún auglýsir starf félagsráðgjafa í barnavernd laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starfshlutfall. Ráðning er tímabundin til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Félagsþjónusta A-Hún sinnir allri félagslegri þjónustu í austur Húnavatnssýslu. Hjá Félags- og skólaþjónustu A-Hún er lögð áhersla á að þjónustan einkennist af fagmennsku, áreiðanleika og jákvæðni. Starfið krefst sérfræðiþekkingar á meðferð barnaverndarmála.

Umsóknafrestur er til og með 19. ágúst 2021

 

Helstu verkefni

  • Móttaka barnaverndartilkynninga og skráning
  • Vinnsla barnaverndarmála, samskipti og samvinna við börn og foreldra
  • Teymisvinna við vinnslu barnaverndarmála
  • Samskipti við aðrar stofnanir við vinnslu barnaverndarmála
  • Samskipti við stuðningsfjölskyldur og fósturforeldra.
  • Þátttaka í stefnumótun, mótun verkferla, starfsáætlana og endurskoðun á reglum í málaflokknum
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi við skóla, heilbrigðisstofnanir, lögreglu og aðra sem koma að málefnum barna.

Menntun

  • Félagsráðgjafanám til starfsréttinda
  • Önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi

Hæfniskröfur

  • Starfsreynsla, þekking og áhugi á barnaverndstarfi
  • Réttindi til að veita PMTO foreldrafærnimeðferð er kostur sem og þekking á ESTER matskerfinu
  • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi er nauðsynlegt
  • Krafa er gerð um jákvæð og lausnamiðuð viðhorf, lipurð í mannlegum samskiptum og sveigjanleika gagnvart notendum þjónustunnar og samstarfsfólki
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur

Umsækjendur skulu senda inn umsóknir sínar á netfang félagsmálastjóra sara@felahun.is. Umsókninni skal fylgja greinagóð skýrsla um störf umsækjanda, menntun og reynslu sem varpað geta ljósi á færni hans til að sinna umræddu starfi.

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sara Lind Kristjánsdóttir í síma 863-5013 eða með því að senda tölvupóst á sara@felahun.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir