Ásdís Ármannsdóttir verður sýslumaður á Akureyri

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur falið Ásdísi Ármannsdóttur sýslumanni á Siglufirði að gegna embætti sýslumanns á Akureyri til eins árs þar sem Björn Jósef Arnviðarson fráfarandi sýslumaður lætur af störfum um áramótin vegna aldurs sakir. Ásdís sem hefur gegnt sýslumannsembættinu á Siglufirði í nærri sjö ár, starfaði áður sem fulltrúi sýslumanns á Sauðárkróki í ellefu ár.

„Þetta er spennandi starf, sem ég hlakka til að takast á við. Verkefnin eru að mörgu leyti þau sömu en embættið á Akureyri er að sjálfsögðu mun stærra, auk þess sem sýslumaðurinn á Akureyri fer með lögreglustjórn í umdæminu. Ég mun áfram búa á Siglufirði, enda er ég með fjölskyldu þar og börn í skóla, en ég mun hafa fasta viðveru á Akureyri, flesta daga vikunnar. Það er ekki langt á milli staðanna eftir að Héðinsfjarðargöng voru tekin í notkun og ég mun þess vegna aka á milli vinnustaðanna, en er viðbúin því að gista á Akureyri ef veður versna, sagði Ásdís í viðtali við Vikudag á Akureyri. Ásdís mun áfram gegna embætti sýslumanns á Siglufirði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir