Áhöfnin á Húna II með tónleika í gærkveldi

Áhöfnin á Húna II sigldi í Sauðárkrókshöfn í gærmorgun og héldu síðan tónleika á höfninni í gærkveldi.

Mikill fjöldi var mættur á höfnina til að sjá listamennina á áhöfninni spila og styrkja gott málefni, en allur aðgangseyrir rann til Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar. Mikið rigndi á meðan tónleikunum stóð en Skagfirðingar og aðrir gestir létu það ekki á sig fá og mátti sjá að allflestir skemmtu sér mjög vel.

.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir