Æfingar hefjast hjá Skagfirska kammerkórnum.

Skagfirski kammerkórinn. MYND AÐSEND
Skagfirski kammerkórinn. MYND AÐSEND
Miðvikudaginn 11.september hóf Skagfirski kammerkórinn æfingar á ný eftir sumarfrí og heldur inn í sitt tuttugasta og fimmta starfsár.
 
Kórinn hefur árlega haldið jólatónleika og vortónleika auk þess að standa fyrir dagskrá á Degi íslenskrar tungu ásamt 7.bekk Varmahlíðarskóla. Engin breyting verður komandi vetur og eins og alltaf fer nú spennandi starfsár af stað. Jólatónleikar verða tvennir, vortónleikar í Héðinsminni og í ár verður Dagur íslenskrar tungu helgaður sálmaskáldinu okkar góða Hallgrími Péturssyni.
 
Nýr stjórnandi tekur við tónsprotanum í vetur, Rannvá Olsen sem stjórnaði kórnum síðasta starfsár hefur látið af störfum en í hennar stað kemur Elena Zharinova píanókennari við Tónlistarskóla Skagafjarðar og hlökkum við mikið til að starfa með henni segir Kristján F. Valgarðsson formaður kórsins.  Kristján bendir jafnfram á að kórinn sé vel mannaður en vilja þó gjarnan bæta við sig tenórum og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband við  formanninn eða senda póst á krival305@gmail.com

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir