Aðalsteinn hverfur frá Byggðastofnun til innviðaráðuneytis

Innviðaráðherra hefur skipað Aðalstein Þorsteinsson, forstjóra Byggðastofnunar, í embætti skrifstofustjóra sveitarfélaga og byggðamála hjá innviðaráðuneytinu og mun hann taka við embættinu frá og með 1. júní næstkomandi. Frá þessu er greint á heimasíðu stjórnarráðsins.

Þar segir jafnframt að Aðalsteinn hafi verið valinn úr hópi margra hæfra umsækjenda að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd.

„Aðalsteinn hefur starfað sem forstjóri Byggðastofnunar frá árinu 2002. Á þeim tíma hefur hann leitt stofnunina í gegnum umtalsverðar breytingar með farsælum hætti og náð góðum árangri. Að beiðni ráðherra tók hann tímabundið við starfi forstjóra Þjóðskrár Íslands og hefur gegnt því embætti frá því 1. febrúar síðastliðnum.

Aðalsteinn er lögfræðingur að mennt og lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1993. Hann hefur jafnframt lokið námi í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í opinberum rekstri frá sama skóla. 
Settur forstjóri Byggðastofnunar, Arnar Már Elíasson, mun áfram sinna því starfi þar til ráðinn verður nýr forstjóri. Staðan verður auglýst innan skamms.
Jafnframt verður Hildur Ragnars sett tímabundið forstjóri Þjóðskrár Íslands til 1. ágúst næstkomandi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir