Aðalfundur knattspyrnudeildar Tindastóls í dag

Aðalfundur knattspyrnudeildar Tindastóls verður haldinn í dag 6. febrúar kl. 17:30 á skrifstofu Tindastóls að Víðigrund 5 á Sauðárkróki. Ljóst er að nýr formaður verður yfir deildinni eftir fundinn þar sem Ómar Bragi Stefánsson, gefur ekki kost á áframhaldandi setu á formannsstóli.

Ómar hefur í 25 á eða, frá árinu 1991, stýrt deildinni við góðan orðstír en segir að nú sé mál að linni og tími til kominn að nýir taki við keflinu.

Tengd frétt: Formaður knattspyrnudeildar hættir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir