Á sama tíma að ári

Blaðamaður Feykis á árlega erindi í réttir annars vegar Stafnsrétt sem staðsett er í Svartárdal í Austur Hún. og hins vegar Mælifellsrétt sem stendur á eyrinni við bæinn Hvíteyrar í Lýdó.

Það þarf auðvitað alltaf að taka fram hvernig veðrið var og ekki annað hægt að segja en að við höfum verið heppin með veður. Ég held að það sé nánast alltaf hægt að segja það ef hann hangir þurr meðan réttað er.

Sem betur fer er réttarstússinu ekki alveg lokið og má segja að allar helgarnar í september séu að einhverju leyti helgaðar réttarstússi. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir