25 manns mega vera í sama rýminu í framhaldsskólum landsins frá og með næsta miðvikudegi
Næstkomandi miðvikudag verður slakað á reglum yfirvalda í sóttvarnaráðstöfunum í framhaldsskólum landsins þegar leyfilegur hámarksfjöldi nemenda og starfsmanna í hverju rými fer úr 10 í 25 manns. Regla um minnst tveggja metra fjarlægð milli fólks verður áfram í gildi en ef ekki er hægt að halda lágmarksfjarlægð ber nemendum og starfsfólki að nota grímur.
„Við teljum mikilvægt að opna framhaldsskólana með þessum hætti og skapa svigrúm fyrir meira starf innan veggja framhaldsskólanna. Ég treysti skólastjórnendum til þess að aðlaga sitt skólastarf með hliðsjón af þessum tilslökunum og aðstæðum hverju sinni. Skólafólk hefur unnið þrekvirki við að halda uppi virku skólastarfi og leitar sífellt leiða til það mæta fjölbreyttum þörfum sinna nemenda,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra á vef ráðuneytisins.
Þar kemur einnig fram að ekki séu fyrirhugaðar hliðstæðar breytingar og tilslakanir á hámarksfjölda í háskólum og gildir áfram regla um að fjöldi nemenda og starfsmanna fari ekki yfir tíu í hverju rými. Heimilt er þó að halda samkeppnispróf, þýðingarmikil lokapróf og staðbundnar námslotur fyrir allt að 30 einstaklinga í vel loftræstum rýmum, að uppfylltri tvrggja metra nálægðartakmörkun og ýtrustu sóttvarnaráðstöfunum.
Ný reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar er væntanleg, gildistími hennar verður frá og með 18. nóvember nk. og til og með 1. desember 2020.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.