Framsókn er flokkur samvinnu, hvorki sósíalisma né frjálshyggju
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er komin að fótum fram. Draumar forystumanna Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um langa valdasetu er orðinn að örvæntingarfullri leit að samherjum.
Framsóknarmenn hafa ekki farið varhluta af ítrekuðum þreifingum ríkisstjórnarforystunnar sem reyndar dró lítillega úr þegar Samfylkingin ákvað að einbeita sér frekar að stofnun sérstakra aðstoðarflokka í ljósi góðrar reynslu af Hreyfingunni. En þó hafa einnig verið uppi sjónarmið um að Framsóknarflokkurinn ætti að gera kosningabandalag við Sjálfstæðisflokkinn. Framsóknarflokkurinn hefur gegnt forystuhlutverki í stjórnarandstöðunni og hafnar því vitanlega að verða þriðja hjólið undir vagni – hvort heldur vinstriflokkanna eða Sjálfstæðisflokksins.
Öfgalaus og hagnýt nálgun
Framsóknarflokkurinn byggir á öðrum gildum en sósíalísku stjórnmálaöflin og aldrei gaf flokkurinn sig frjálshyggjunni á vald líkt og Sjálfstæðisflokkurinn gerði. Sem dæmi má nefna að Framsóknarflokkurinn hafnaði ítrekað hugmyndum Sjálfstæðisflokksins þess efnis að selja Íbúðalánasjóð.
Samvinnuhugsjónin er framsóknarmönnum leiðarvísir til velferðar og velmegunar fyrir stærri og smærri byggðir landsins. Grunnur samvinnuhugsjónarinnar er öfgalaus og hagnýt nálgun á viðfangsefnum stjórnmálanna þar sem ábyrgð, heiðarleiki og jafnræði eru lykilatriði. Samfélag í anda samvinnu er hvorki sósíalískt vöggustofusamfélag þar sem ríkið er með nefið ofan í hvers mann koppi né kapítalískt hákarlasamfélag þar sem auðhyggja er öllu æðri.
Ísland er velferðarþjóðfélag og Framsóknarflokkurinn á stóran þátt í uppbyggingu þess. Flokkurinn stendur vörð um velferðarþjónustuna og vill treysta undirstöður hennar.
Framsóknarflokkurinn vill samfélag þar sem atvinnusköpun einstaklingsins fær notið sín hvort heldur í einyrkjarekstri eða hlutafélagaformi. Atvinnulífið er undirstaða efnahagslegrar velmegunar. Umgjörðin þarf að vera skýr, bæði lagaumhverfið og eftirlitskerfið, en að öðru leyti á atvinnulífið að sjá um sig sjálft en ekki vera á opinberu framfæri.
Pólitísk og efnahagsleg skemmdarverk verður að stöðva
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hóf feril sinn sem starfsstjórn hrunveturinn 2009 gegn fyrirheitum um að ráðast í leiðréttingu lána og grípa til nauðsynlegra aðgerða í atvinnumálum. Við þau fyrirheit var ekki staðið. Þess í stað þurfti Framsóknarflokkurinn að halda aftur af því að bráðabirgðastjórnin réðist í ýmsar varasamar aðgerðir.
Eftir kosningarnar 2009, þegar ekki naut lengur aðhalds Framsóknarflokksins, breyttist ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur í hóp aðgerðarsinna sem tefldi fullveldi og sjálfstæði landsins í tvísýnu með aðildarumsókn að Evrópusambandinu, hóf herför gegn undirstöðuatvinnuvegum landsins og brást almenningi ítrekað þegar kom að lausn skuldavanda heimilanna.
Umsóknin um aðild Íslands að Evrópusambandinu er fádæma illa unnin, tekur ekki mið af utanríkishagsmunum okkar í bráð og lengd og er fullkomlega á skjön við yfirvegað mat nágrannaþjóða okkar í austri og vestri. Grænlendingar, Færeyingar og Norðmenn eru einhuga um að halda sig utan Evrópusambandsins. Landfræðileg lega þessara þjóða og grundvallarhagsmunir þeirra sem strandríkja gefa þá einboðnu niðurstöðu. Það þarf ekki að hafa fleiri orð um þá heimsku að trúa því að ESB sé heildarlausn allra okkar vandamála.
Ítrekaðar atlögur gegn grunnatvinnugreinum þjóðarinnar sýna að hvorugur vinstriflokkanna ber nokkurt skynbragð á atvinnurekstur. Markviss áróður stjórnarflokkanna gegn atvinnulífinu hefur jafnframt sýnt óvild þeirra gagnvart landsbyggðinni. Fyrir tilstilli stjórnarandstöðunnar hefur þó tekist að koma málum svo fyrir að atvinnulífið á sér viðreisnar von.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar þegar kemur að skuldsettum heimilum og fyrirtækjum. Í stað þess að hlýða á málefnalegar tillögur Framsóknarflokksins hefur ríkisstjórnin tekið þá meðvituðu ákvörðun að láta almenning og fyrirtæki berjast gegnum dómsali við endurreista banka sem í dag eru í eigu erlendra vogunarsjóða.
Samfélagið er í biðstöðu
Með íslensku krónuna og fullveldið að vopni hefur Íslendingum að nokkru leyti tekist að vinna sig úr kreppunni þrátt fyrir að sitja uppi með dómgreindarlausa aðgerðarsinna í ríkisstjórn. En það er ekki meira en svo að við höfum komist úr kreppunni. Atvinnulífið heldur að sér höndunum í fjárfestingum og ungir Íslendingar flytja til nágrannalandanna í leit að tækifærum.
Þjóðin hefur kynnt sér hryllingsframtíð vinstristjórnarinnar sem heitir Evrópusambandið og eftir því vex og styrkist andstaðan við að framselja fullveldið og ábyrgð á íslenskum málum til útlanda. Vandamálið í dag er að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar býður ekki upp á neina framtíðarsýn og þess vegna er samfélagið í biðstöðu.
Sátt í stað pólitískrar óaldar
Eftir hrunið fengum við að kenna á óöld vinstriflokkanna þar sem markvisst var unnið að því að etja saman ólíkum hópum samfélagsins. Vinstriflokkarnir komust til valda með hávaða og látum. Ríkisstjórnin leggur sig fram um að viðhalda óeirð í samfélaginu í þeirri von að slíkt geti orðið framlenging valdatímans.
Niðurstaða forsetakosninganna í sumar sýndi að þjóðin er tilbúin að sættast við fortíðina, sé á annað borð í boði framtíðarsýn þar sem fullveldið er tryggt og ekki hreyft við hornsteinum lýðveldisins.
Dómstólar munu á næstunni fjalla um refsimál sem tengjast útrásinni en meginlærdómurinn sem má draga af árunum fyrir hrunið er að óhóf og öfgar leiða til ófarnaðar.
Framsóknarmenn telja að forsenda endurreisnar þjóðlífsins sé sátt eftir hrunið og vinstrióöldina. Sáttin hlýtur að byggjast á þeirri sannfæringu að við ætlum öll saman að byggja þetta land áfram, settur verði kraftur í atvinnuuppbyggingu vítt og breitt um landið og að velferðarkerfið verði varið. Þegar næsta kjörtímabili alþingis lýkur lætur nærri að Ísland hafi verið fullvalda í 100 ár. Við eigum að sækja í þennan reynslusjóð sem fullveldistímabilið er og þá er okkur ekkert að vanbúnaði. Þjóðin bíður eftir forystu, Framsóknarflokkurinn er reiðubúinn.
Ásmundur Einar Daðason
Alþingismaður Framsóknarflokksins
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.