Viltu vera með í fyrirtækjakönnun landshlutanna 2022?
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
23.02.2022
kl. 14.01
„Fyrirtækjakönnun landshlutanna er á vegum allra landshlutasamtaka á landsbyggðinni, atvinnuþróunarfélaga og Byggðastofnunar. Hún er ætluð öllum, stórum og smáum rekstraraðilum/fyrirtækjum sem eru í framleiðslu eða bjóða þjónustu. Markmiðið er að kanna hver staða þeirra er til að geta stutt þau betur hvar sem þau eru á landinu,“ segir í kynningu á vef SSNV.
Fram kemur að könnunin er valkvæð og fólki ber ekki nokkur skylda til að svara könnuninni eða einstökum hluta hennar.
„Í þessari könnun er spurt um hvort fyrirhugað sé að bæta við fólki eða fækka og hvort það vanti menntað starfsfólk. Hvort fyrirtæki ætli að fjárfesta eða losa sig við framleiðslutæki og -tól. Þá er spurt um nokkur atriði er lýsa tegund og eðli rekstursins. Að lokum er spurt út í nokkur atriði er tengjast stöðu eftirspurnar hjá fyrirtækjunum, stuðningsgreinar og þekkingu þeirra á stoðkerfinu.
Úrvinnsla könnunarinnar verður með sambærilegum hætti og þegar hún var framkvæmd síðast (sjá hér). Hún fer þannig fram að reiknuð verða meðaltöl svaranna eftir landshlutum og stundum atvinnugreinum. Stundum er gerð aðhvarfsgreining og þá getur verið gagnlegt að nota viðbótarupplýsingar annars staðar frá til að fá greinilegri niðurstöður. Ekki verða birtar upplýsingar sem rekja má til einstakra fyrirtækja eða einstaklinga, í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Aðeins verða birtar niðurstöður þeirra hópa sem spurt er um í könnuninni.“
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt geta skráð sig til leiks á vef SSNV eða kynnt sér málið betur þar >
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.