Veðurklúbbur Dalbæjar fundaði í gær

Mynd aðsend.
Mynd aðsend.

Í morgun fékk Feykir góðan póst frá góðum vinum úr veðurklúbbi Dalbæjar á Dalvík en þau funduðu í gær og gleðja vonandi flesta með spá þeirra fyrir jólamánuðinum. 

,,Við ræddum ýmsar leiðir leiðir til að spá fyrir um komandi veður mánuð, en niðurstaðan varð sú að tilfinning félaga fyrir mánuðinum og tunglkomur voru það sem við styðjumst við að þessu sinni. Hvort tveggja vísar til þess að áframhald verði að mestu á þeim stillum og veðurblíðu hjá okkur á næstu vikum en líklegast bæti eitthvað í snjó þegar nær dregur jólum. Allavega nóg til að gleðja skíða og snjó útivistarfólk. Nýtt tungl um miðjan mánuðinn vill vísa vindáttinni í framhaldinu að mestu í suðaustan eða austanátt. En við gerum ekki ráð fyrir neinum miklum veðrum þó það snjói eitthvað."

Á fundinn voru mætt Þorgerður Sveinbjarnardóttir, Haukur Haraldsson, Bergur Þór Jónsson, Hörður Kristgeirsson, Magnús Gunnlaugsson, Jóna Jónsdóttir, Inga Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, Þóra Jóna Finnsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Ásgeir Stefánsson, Sigurlaug, Kristján Loftur Jónsson, Erla Tryggvadóttir og Guðrún Skarphéðinsdóttir.

Aðventan er góður tími

Flytur oftast snjó og él

Á vélsleða ég áfram stími

Og vonað ekkert brotní mél.

 

Því stundum hef ég lítið rými

Þó mér sýnist ganga vel

Því grjót í leyni við ég glími

Og gæti þurft að skiptum vél.

Höf. Bjór

 

Ort um þriðja janúar.

Skafrenningur nú um næðir

Norðlendinga alla

Flytur snjó um fjöll og hæðir

Freðmýrar og hjalla.

Höf. Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir