Var að ljúka við að prjóna hestalopapeysu á ömmustelpuna mína

Í dag býr Björg á Blönduósi en hefur búið í Austur-Húnvatnssýslu í 44 ár en áður bjó hún á Sveinsstöðum í Húna-vatnsshreppi þar sem sonur hennar og tengdadóttir stýra nú búi. Hún á fjögur börn en auk sonar hennar á Sveins-stöðum búa tvö börn á Blönduósi en yngsta dóttirin býr í Reykjavík. Björg á níu barnabörn og þrjú barnabarna-börn og bráðum verða þau fjögur.

Hve lengi hefur þú stundað hannyrðir? Ég byrjaði ung í handavinnu með ömmu að prjóna og sauma út og átti margar gæðastundir með henni alla hennar tíð. Handavinna hefur verið partur af lífi mínu alla tíð.

Hvaða handavinna þykir þér skemmti-legust? Allavega prjón og útsaumur þykir mér skemmtilegast.

Hverju ertu að vinna að um þessar mundir? Ég er mjög oft með fingra-vettlinga á prjónunum eins og núna og er líka með nokkur önnur verkefni í gangi. Ég var t.d. að ljúka við að prjóna hestalopapeysu á ömmustelpuna mína sem fermist í vor og ætlar að láta taka fermingar-myndir af sér í henni.

Hvar fékkstu hugmyndina? Hún átti hugmyndina sjálf, hún sá mynd á Instagram og ég bauðst til að prjóna peysuna fyrir hana.

Hvaða handverk sem þú hefur unnið ertu ánægðust með? Ég er ánægðust með alla fingravettlingana sem ég hef prjónað en þau skipta tugum pörin sem ég hef prjónað, þetta er mynstur frá langömmu barnanna minna. Ég er einnig rosalega ánægð með svörtu rósóttu peysuna sem ég prjónaði á son minn síðastliðinn vetur, en ég prjónaði hana eftir peysu sem amma mín prjónaði á son sinn fyrir um 50 árum síðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir