Úthvíldir Dalbæingar spá í tunglið

Í skeyti frá Veðurklúbbi Dalbæjar segir að spámönnum hafi orðið ljóst á fundi þann 1. febrúar að áframhald verði á þeim mildu veðrum sem hafa leikið við Dalvíkinga síðan síðastliðið sumar þó hitastigið hafi núna breyst yfir í frost og sú úrkoma sem fellur verði því nánast bara í sínu fallega fasta hvíta formi.

„En eins og áður hefur komið fram í spám okkar þá verða veður annarsstaðar á landinu því miður ekki eins ljúf, en á meðan eru ennþá nokkur gistipláss laus hér á Dalvík og allir þeir sem vilja komast í blíðuna til okkar velkomnir á meðan húsrúm leyfir,“ segir í skeytinu.

Spá Veðurklúbbsfélaga byggist nú að mestu á nýju tungli sem kom upp í austri en þeir telja líklegt að veðurmildi það sem þeir hafa notið á Dalvíkinni undanfarið hafi orðið til þess að félagar hafa sofið fast og vel og muna því enga drauma til að byggja á undanfarin mánuð.

En samkvæmt venju er kvatt með vísum um veður og þorra,

Fangið fáum fullt af fönn
Fagra framtíð sjáum
Sigrast sól á myrksins önn
Sól og sælu þráum.
Höf. Bjór

Geislar klárir greikka stig
glaður tárast dagur.
Hefir báran hægt um sig
himinn blár og fagur.

Þorri um fjall og flata gljá
feldinn mjallar breiðir.
Úti er falleg sjón að sjá
sól um allar leiðir.
Höf. Ólína Jónasdóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir