Tónleikaröð sóknarnefndar Blönduóskirkju

Olga Vocal Ensemble
Olga Vocal Ensemble

Fyrstu tónleikarnir í Tónleikaröð sóknarnefndar Blönduóskirkju verða haldnir í kirkjunni mánudaginn 26. júlí kl. 20.00 þar sem fram koma Olga Vocal Ensemble.

Olga Vocal Ensemble er sönghópur sem hefur verið starfræktur síðan árið 2012. Hópurinn hélt sína fyrstu tónleika á Íslandi sumarið 2013 og hefur heimsótt Ísland á hverju ári síðan, að undanskildu árinu 2020. Hópurinn er skipaður 5 strákum, þrír þeirra eru búsettir í Hollandi og tveir á Íslandi. Í Olgu eru Hollendingarnir Jonathan Ploeg og Arjan Lienaerts, Englendingurinn Matthew Lawrence Smith, rússneski Bandaríkjamaðurinn Philip Barkhudarov og Íslendingurinn Pétur Oddbergur Heimisson.

Lagalisti tónleikanna verður fjölbreyttur og má heyra klassísk verk, jazzlög yfir í yfirtónasöng saminn af meðlimum Olgu þar sem má líkja hljómnum sem heyra má við það þegar norðurljósin mála falleg verk á himnum. Sjá nánar á Facebooksíðu Blönduóskirkju. [https://www.facebook.com/blonduoskirkjaNyja]

Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði SSNV og Menningarsjóði Kaupfélags Skagfirðinga.

Allur aðgangseyrir rennur óskiptur í orgelsjóð kirkjunnar. Ef einstaklingar og fyrirtæki vilja styrkja sjóðinn þá er reikningsnúmerið eftirfarandi: 0307-26-004701. Kt. 470169 – 1689.

Fyrir hönd sóknarnefndar,

Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson

Formaður

 /Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir