Til hamingju Ísland! 25.000 undirskriftir! - Höldum áfram!

Þátttaka landsmanna í undirskriftasöfnuninni "Nýju stjórnarskrána strax!” hefur farið langt fram úr vonum og ekkert lát er á undirskriftum. Þess vegna hefur verið ákveðið að setja markið enn hærra og stefna að 30 þúsund undirskriftum fyrir 20. október.

Samtök kvenna um nýja stjórnarskrá gerðu þrennt á baráttudegi kvenna 19. júní síðiastliðinn; söfnuðust saman í mæðragarðinum sungu fyrir Alþingi, þáðu heimboð Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands á Bessastaði og hrundu af stað undirskriftasöfnun undir yfirskriftinni "Nýju stjórnarskrána strax!" 

Markmiðið var að safna 25 þúsund undirskriftum kosningabærra Íslendinga fyrir 20. október næskomandi, en þann dag árið 2012 samþykktu kjósendur að tillögur sem fyrir þá voru lagðar í þjóðaratkvæðagreiðslu skyldu verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár Íslands. 25 þúsund eru 10% kosningabærra Íslendinga og táknræn tala því ef nýja stjórnarskráin hefði þegar tekið gildi gæti þessi fjöldi lagt fram lagafrumvarp á Alþingi.

Það lýsir bágborinni stöðu í lýðræðisríki að almennir borgarar þurfi að krefja þjóðsþing sitt um að það virði úrslit kosninga sem það sjálft boðaði til fyrir bráðum átta árum. En sú er staðan á Íslandi. Gríðarleg þátttaka í undirskriftasöfnuninni sýnir hins vegar að landsmenn ætla ekki að sætta sig við þessa framkomu. Yfir 25000 þúsund kjósendur hafa nú þegar sýnt það í verki.

Við heitum á alla landsmenn sem vilja standa vörð um lýðræðisleg grundvallargildi og lýðræðislega stjórnarhætti að kynna sér kröfuna á www.nystjornarskra.is og skrifa undir.
Samtök kvenna um nýja stjórnarskrá

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir