Þórdís Kolbrún í heimsókn á Norðurlandi vestra

Við Ketubjarg: f.v. Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvædastjóri SSNV, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála og Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri. Mynd: SSNV.
Við Ketubjarg: f.v. Unnur Valborg Hilmarsdóttir framkvædastjóri SSNV, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála og Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri. Mynd: SSNV.

SSNV greinir frá því að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar hafi verið á ferð um Norðurland vestra í blíðunni í gær fimmtudag. Með henni í för voru Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri ásamt starfsfólki ráðuneytisins og Ferðamálastofu.

Hópurinn hóf yfirreiðina í Skagafirði þar sem heimsóttir voru ferðaþjónustuaðilar og smáframleiðendur og eftir stuttan spjallfund með fulltrúum ferðaþjónustunnar í Skagafirði var haldið fyrir Skaga, þar sem stoppað var við Ketubjarg og í Kálfshamarsvík, en verkefni tengd þessum stöðum hafa fengið framlag úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða á síðustu misserum.

Nýjasti veitingastaðurinn á Norðurlandi vestra "Harbour restaurant" á Skagaströnd var heimsóttur áður en staðan var tekin með heimamönnum við Hrútey og á Þrístöpum, en á báðum þessum stöðum eru í gangi viðamiklar framkvæmdir, sem Frakvæmdasjóðurinn hefur komið að, og eiga eftir að skila ótrúlega áhugaverðum áfangastöðum fyrir svæðið.

Deginum lauk svo á Hvammstanga þar sem ráðherra dró að húni fána RÉTTIR food festival, sem nú er að hefjast, áður en smakkað var á framlagi Sjavarborgar til matarhátíðarinnar og var enginn svikin af því. Sannarlega vel heppnaður dagur þar sem hægt var að tæpa á nýjungum og áformum á svæðinu, en ráðherra hefur árlega farið í svona dagsferð um einn tiltekin landshluta. 

/SMH

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir