TextílLab auglýsir eftir verkefnastjóra
Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir öflugum aðila í nýtt og spennandi starf við uppbyggingu TextílLabs á Blönduósi. Um er að ræða einstakt tækifæri til að móta og þróa nýtt starf þar sem fléttast saman aldagömul textílhefð okkar Íslendinga og fjórða iðnbyltingin.
Um er að ræða 50-100% stöðugildi. Verkefnisstjórinn mun halda utan um daglega starfsemi, svo sem opinn tíma fyrir almenning, viðhald og þrif á tæknibúnaði, umsjón með húsnæði, skipulag á námskeiðum og móttöku hópa og einstaklinga.
Textílmiðstöð Íslands sem staðsett er á Blönduósi hefur nýlega sett upp stafræna smiðju sem er sérhæfð í rannsóknum og framleiðslu á ýmiskonar textíl tengdum verkefnum. Uppbygging smiðjunnar hlaut styrk úr Innviðasjóði og verkefnið er unnið í samstarfi við Evrópuverkefnið Centrinno, samstarfsverkefni 9 evrópskra borga með það markmið að endurvekja textíliðnað í Evrópu. Jafnframt hlaut uppbygging TextílLabs og TextílKlasa nýverið styrk úr Lóu - Nýsköpunarstyrk á landsbyggðinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tekur á móti einstaklingum og hópum og kynnir möguleika smiðjunnar
- Leiðbeinir notendum og veitir tæknilega leiðsögn
- Tekur virkan þátt í að aðstoða frumkvöðla og sprotafyrirtæki í textíl nýsköpun
- Heldur utan um og framfylgir viðhaldi og hreinlæti á tækjabúnaði
- Heldur utan um skráningar, heimsóknir og önnur töluleg gögn
- Annast kennslu á tækjabúnað og heldur reglulega námskeið
- Tekur þátt í gerð og þróun námsefnis og námskeiða
- Tekur þátt í öðrum tilfallandi verkefnum hjá Textílmiðstöðinni.
Hæfniskröfur
- Brennandi áhugi á því að móta sitt starf með tilliti til fjórðu iðnbyltingar í tengslum við textíl
- Iðn- eða háskólamenntun sem nýtist í starfi kostur
- Þekking á hönnunarforritum tengd stafrænni tækni kostur
- 2D og 3D hönnunar forrit, myndvinnsla ofl.
- Þekking á framleiðsluferlum textíls kostur
- Reynsla af notkun FabLab kostur
- Lipurð í samskiptum og þjónustulund
- Starfið kemur til með að gera mikla kröfu á sjálfstæði og frumkvæði
Umsóknarfrestur er til 10 ágúst og nánari upplýsingar veitir Elsa Arnardóttir í síma 694 1881, netfang;elsa@textilmidstod.is.
/fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.